AMKA
Um okkur
Sagan okkar
Frá Danmörku til Íslands
AMKA flytur inn úrvals vín úr öllum heimshornum. Fyrirtækið var stofnað árið 1978 í Danmörku af Anna Marie Søndergaard. Nafnið kemur úr upphafsstöfum hennar nafns og millinafns (AM) og fyrstu tveim stöfum eiginmanns hennar Karstens (KA).
Við tilheyrum AMKA Group, sem hefur starfsemi um öll Norðurlöndin, í Eystrasaltsríkjunum, Þýskalandi og Póllandi. Við njótum þess að geta valið úr miklu úrvali úr vöruhúsi AMKA í Danmörku og þannig þjónað íslenska markaðnum með miklu vöruvali og oftast stuttum afhengingartíma.

Tilgangur
AMKA er rótgróið fjölskyldufyrirtæki. Við erum öflugur dreifingar- og samstarfsaðili birgja á stóru markaðssvæði. Við þjónustum yfir 12.500 viðskiptavini á okkar svæðum og veitum þannig okkar samstarfsaðilum aðgang að miklum möguleikum.
Vínþekking
Við kappkostum að veita góða og persónulega þjónustu og að miðla þeirri miklu vínþekkingu sem við búum yfir til okkar viðskiptavina. Þjálfun starfsfólks hjá okkar viðskiptavinum er einn af hornsteinum starfseminnar.
Okkar leið
Við kappkostum að þjónusta okkar viðskiptavini vel og veita framúrskarandi ráðgjöf er varðar vínval og þjálfun starfsfólks hjá okkar viðskiptavinum. Persónuleg þjónusta er kjarninn í öllu sem við gerum.
